Ellingsen frumsýnir 2015 árgerðina af Ski-doo og Lynx í verslun sinni á Akureyri næstkomandi föstudag, 14. nóvember kl. 16-20. Sleðafólk er að sjálfsögðu hvatt til að fjölmenna og eiga saman skemmtilega stund. Stærstu tíðindin hjá Ski-doo þetta árið er að sjálfsögðu nýi T3-pakkinn fyrir Summit þar sem í boði er svakalegasta belti sem sést hefur til þessa, 174×16 tommur með 3 tommu spyrnum. Já við erum að tala um belti sem er nærri fjórir og hálfur metri á lengd! Einnig mun vera komin endurbætt framfjöðrun og eitthvað meira sem gaman verður að fræðast um. Nú Lynx er einnig allrar athygli verður og hefur komið vel út hérlendis. Þar m.a. t.d. nefna BoonDocker 800 fjallasleðann og í vinnusleðum slá fáir Lynx við. Spennandi dagur framundan hjá sleðafólki norðan heiða á föstudaginn.